Beint frá bónda búðirnar

Ég er búin að þræða allar tvær beint frá bónda búðirnar í dag það tók reyndar dálítinn tíma að finna nýju ísbúðina en það hafðist á endanum. 

Ég skoðaði allt sem er í boði "Frú Laugu" og mátti finna ýmislegt girnilegt á þeim bænum. Ég keypti silung þar fyrir jól og núna leitaði ég að þeirri tegund af silungi aftur og fann í frystikistunni. Hann er nú "algjör humall" eins og hann frændi minn sagði alltaf þegar eitthvað var gott. Sá hefði nú kunnað að meta þennan fisk. Þannig að silungur 2 mín á pönnu í kvöld og maturinn er tilbúin.

Ég keypti eitthvað í krukku sem ég hélt að væri mauk eða sulta en það var þá bara niðursoðnar rauðrófur í bitum með engifer og eldpipar það er mjög gott. Mæli með því en ekki reyna að borða neitt á eftir því það er allt bragðlaust eða með allt öðru bragði en maður þekkir. Ha ha ha ég reyndi að fá mér kaffi með hrökkbrauðinu og þessu mauki (sem var ekki mauk) en kaffið smakkaðist engan vegin eins og vanalega.

Í ísbúðinni fékk ég að smakka ísinn sem er verið að selja beint frá bónda hann er góður en svakalega sætur það er alltaf jafn merkilegt hvað allt þarf að vera sætt sem kemur úr mjólkurvörum. Veit svo sem ekki hvort það er notaður sykur eða eitthvað annað til þess að sæta þessa afurð. Ég hef smakkað ís sem er beint frá bónda af öðru býli og hann er alveg jafn sætur erum við orðin svona svakalega vön miklu sykurmagni að smökkurum finnst þetta bara eðlilegt bragð.


Kvefið að batna en spurning með bláa haminn

Ég held bara að kvefið sé á faraldsfæti enda keypti ég heilt apótek í gær og gott ef ekki Heilsubúðina líka. Fékk mér hálstöflur og meira kamfórukrem og hóstasaft og te en gleymdi að kaupa mér kanil, en ég fæ hann sennilega ekki í apótekinu.

Þetta með kvefið og bláuhandarhreyfinguna hefur fylgst mjög sterkt að í mér undanfarið en ég veit ekki hvort bláa höndin fer af mér um leið og kvefið batnar það kemur bara í ljós. Hún er ansi blá ennþá á mér höndin og eiginlega bara báðar en kannski bráir pólitíkin af mér um leið og ég kemst almennilega undir frískt loft.

Það hefur verið margt í gangi að minnsta kosti í huganum þó að ég hafi setið með rauðan nebba, hnerrrað í mig harðsperrur í þindina og verið með BLÁAN  trefil um hálsinn  það kemur allt í ljós hvort þessi hugarfóstur mín verða að veruleika í framtíðinni. Það er eins og það sé einhver biðtími í loftinu hjá mér um þessar mundir og ég verð bara að nýta hann til þeirra hluta sem best falla að svoleiðis stundum.   


Já hér er allt vaðandi í Sjálfstæðisliði

Á moggablogginu er víst allt orðið vaðandi í Sjálfstæðisliði það eru þeir einu sem eftir voru eftir að nýr ritstjóri tók við höfuðstöðvunum. Ja svei mér þá ef ég er ekki orðin blárri en allt sem blátt er eftir allt sem á hefur gengið á þessu ári sem vinstri stjórn hefur verið við völd. Ég man ekki hvort ég hef nokkurn tíma kosið Sjálfstæðisflokkinn en ég veit ekki nema að ég sé komin með bláu höndina og gott ef ekki báðar hendur. Það er verst að það er engin almennilegur í forystunni fyrir flokkinn og því síður að sá frambærilegasti sé í fyrsta sæti í mínu kjördæmi en þrátt fyrir það þá er ég farin að hugsa alvarlega um að kjósa flokkinn. Það getur ekki orðið verra en það er núna þegar ekkert er að gerast í málum fólksins í landinu.

Dásamlegt kvef

Það byrjaði að hellast í mig dásamlegt kvef á mánudaginn sem hefur farið versnandi eftir því sem leið á vikuna en toppurinn var í gær. Það er sem sagt allur pakkinn og þegar maður er svona skemmtilega veikur þá má maður bara dekra við sig og dúlla sér. Kamfórukremið hefur verið óspart notað enda finnst mér það besta hóstameðalið þ.e.a.s. ef maður ber það nógu oft á sig á bringuna og hálsinn. Svo eru það nefdroparnir sem eru mjög nauðsynlegir svo kvefið festist ekki í ennisholunum það er nefnilega ekki notalegt þegar það gerist. Annars hef ég bara haft það gott var að hlusta á gamalt námskeið á geisladiski sem tekur alveg heila tvo daga að hlusta á enda var námskeiðið í tvo daga, þannig að dagur tvö er á morgun. Skrítið að hlusta og horfa til baka og sjá hvað hefur gerst á tveimur árum.

Skrítinn draumur

Mig dreymi skrítinn draum í nótt. Mér fannst eins og ég væri að vinna á risastórri hjúkrunardeild fyrir aldraða. Ég fer inn í eina stofuna sem ég vissi að var stór og rúmaði marga, miklu fleiri heldur en venjulega sjúkrastofa, ég ætlaði að fara að hjálpa fólki að hátta þó mér finndist það vera full snemmt. Þá sé ég að það er opið niður í stóran sal sem maður horfði ofan í frá þessu herbergi, þar sá ég fullt af fólki sem var í biðröð, það var þreföld röð af fólki í þessari biðröð og þetta voru allt Íslendingar á leiðinni til þess að leita ráða eða aðstoðar í sambandi við fjármálin sín. Ég hugsaði í draumnum nú það er eins gott að ég er ekki í þessari röð þetta tekur engan enda, röðin var svo löng og allt gekk svo hægt.

 

Síðan sé ég að það er einhver veisla í gangi það eru kökur á borðum og það er risastór terta sem engin er búin að snerta en mér fannst hún vera fyrir fólkið sem var í biðröðinni og ég hugsaði bara það sér greinilega engin þessa miklu tertu því hún var ósnert. Þar sem þessi veisla var í gangi þá fannst mér sem ég gæti ekki farið að hjálpa fólkinu í háttinn það yrða bara að bíða betri tíma á meðan allt þetta fólk væri á ferli.

 

Ég tilheyrði starfsfólkinu og þarna voru miklu minni tertur fyrir okkur þær voru bara eins og flís miðað við hina tertuna og eitthvað fleira var í boði. Við fórum því að fá okkur af litlu tertunum sem voru reyndar nokkrar á víð og dreif um herbergið en við höfðum alveg nóg þrátt fyrir það að terturnar væru svona litlar. Það virtist engin mega vera að því eða taka eftir stóru tertunni á meðal hinna sem voru í röðinni en við starfsfólkið máttu ekki borða af þeirri tertu þar sem við vorum í vinnu hjá gestgjafanum (sem ég vissi ekki hver var.) Jæja lengri var draumurinn ekki, nú væri gott að fá ráðningar við þessum draumi.  


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband